
Eins og áður hefur komið fram verðum við í samstarfi með Bylgjulestinni í sumar og munu átta helgar sumarsins verða tileinkaðar tilteknum umferðaröryggismálum. Fyrsta helgin var nýliðin helgi 18 – 19. júní og síðasta helgin verður 5 – 7 ágúst.
Um hverja helgi verður lögð sérstök áhersla á tiltekið umferðaröryggisþema og eru þau þessi:
- AKSTUR MEÐ EFTIRVAGNA
18.-19.júní – Vesturland/Akranes - AÐSTOÐARBÍLSTJÓRINN OG ÖRYGGI BARNA Í BÍL
24.-26.júní – Suðurland/Höfn - BÍLBELTANOTKUN
1.-3.júlí – Norðurland/Akureyri - HESTAR OG ÖNNUR UMFERÐ (Hestamannamótið á Hellu)
8.-10.júlí – Suðurland/Hella og Selfoss - HRAÐI OG FRAMÚRAKSTUR
15.-17.júlí – Austurland/Egilsstaðir - FARSÍMANOTKUN VIÐ AKSTUR
22.-24.júlí – Vestfirðir/Ísafjörður og Bolungarvík - AKSTUR UNDIR ÁHRIFUM ÁFENGIS – VÍMUEFNA – FÍKNIEFNA
29.-31.júlí – Verslunarmannahelgin/ sent út frá mörgum stöðum, þar sem fólkið verður - SVEFN OG ÞREYTA VIÐ AKSTUR
5.-7.ágúst – Norðurland/Siglufjörður
Dagskrá Bylgjunnar verður rík af hverskonar umfjöllunum um þessi atriði og hefur Samgöngustofa látið útbúa 24 útvarpsauglýsingar tengdar þessum áhersluatriðum. Auk þess hefur dagskrágerðarfólk Bylgjunnar upplýsingar (texta) sem hefur verið tekinn saman og það getur talað út frá í kynningum sínum. Hér má heyra dæmi um auglýsingar (trailer):
Innslag – Hinn bílstjórinn:
Innslag – Slá inn símanúmer: