
Bylgjulestin lagði af stað í ferð sína um landið um síðustu helgi og er Samgöngustofa með í því verkefni. Áhersla verður á ákveðna þætti í umferðaröryggi eftir því hvar og hvaða hátíð eða atburður er heimsóttur. Fyrsti viðkomustaður var Akranes en dagskráin er svona í sumar:
- 18. júní á Akranesi
- 25. júní á Humarhátíð á Höfn
- 2. júlí á Akureyri
- 9. júlí á Landsmóti Hestamanna á Hellu
- 16. júlí á Egilsstöðum
- 23. júlí á Flateyri, Vestfjörðum
Frétt á visir.is um fyrsta stoppið á Akranesi.