Nýjar merkingar

Nýja merki Samgöngustofu er nú komið upp fyrir ofan aðalinnganginn

Nýja útlitið okkar er smám saman að taka yfir það gamla og nú er nýja merkið komið yfir aðalinnganginn sem og á öðrum stöðum. Snorri og Ólöf flögguðu nýju fánunum á mánudaginn í síðustu viku og þá fór nýja útlit vefsins okkar einnig í loftið. Það er að ýmsu að huga og gamla merkið er notað á ýmsum vefum annarra stofnanna og höfum við sett okkur í samband við ýmsa aðila og beðið þá um að skipta út. Ef þið verðið vör við gamla merkið einhversstaðar á víðnetinu eða eruð með ábendingu um staði sem ekki er búið að skipta út hjá okkur megið þið endilega senda ábendingu á samskipti@samgongustofa.is.

Nýja hönnunarstaðlinn má nálgast hér.

Snorri og Ólöf drógu nýju fánana að hún á mánudaginn í síðustu viku
Ný „gardína“ við innganginn
Nýjar gardínur í anddyrinu
Nýja útlitið komið í afgreiðslukerfið
Snorri alveg með þetta