Nýr stefnuvefur – stefna.samgongustofa.is


Eins og fram hefur komið hefur verið samþykkt ný heildarstefna Samgöngustofu fyrir tímabilið 2022 til 2024 og er hún vegvísir til þeirrar framtíðar sem við viljum byggja á komandi árum. 

Af þessu tilefni hefur Samgöngustofa opnað sérstakan stefnuvef stefna.samgongustofa.is, þar sem hægt er að kynna sér stefnuna betur. Stefnuvefurinn er mikilvægur vettvangur til að hafa stefnuna aðgengilega fyrir okkur sem störfum eftir henni og ekki síður fyrir ytri samstarfsaðila sem tengjast starfi stofnunarinnar, en gott samstarf er lykilatriði væntinga og árangurs. Stefnuvefurinn verður lifandi vefur þar sem m.a. má sjá helstu verkefni í vinnslu sem miða að því að tryggja framgang stefnunnar.