Nýr hönnunarvefur

Samhliða nýrri ásýnd Samgöngustofu höfum við nú opnað nýjan hönnunarvef, honnun.samgongustofa.is, þar sem hægt er að nálgast lógóið í ýmsum formum ásamt ýmsum hönnunarskjölum. Á vefnum er m.a. hægt að nálgast:

  • Lógóið á ýmsum formum og bæði á íslensku og ensku
  • Upplýsingar um litina sem notaðir eru
  • Undirskrift í tölvupósti
  • Letur
  • Ljósmyndir sem eru notaðar
  • PowerPoint kynningar
  • Myndir fyrir samfélagsmiðla
  • Merkingar bíla
  • Fánamerkingar
  • Sýningargardínur og fleira

Upplýsingar um hönnunarstaðalinn og eldri hönnunarstaðal er hægt að nálgast hér á innri vefnum.