Föstudagslagið í boði Unu

Groove Is in the Heart by Deee-Lite on Amazon Music - Amazon.co.uk

Það er hún Una Björg sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir hún:

Ég velti valinu töluvert fyrir mér. Enda mikið ábyrgðarhlutverk að velja föstudagslagið 😉 Að lokum stóð valið á milli Disarm með Smashing Pumpkins og Groove is in the heart með Deee-Lite. Ég ákvað að velja Groove is in the heart sem mitt föstudagslag því það er eitthvað við þetta lag sem fær mann til að dilla sér. Það er gulltryggt verða a.m.k. 20% glaðari eftir hlustun og/eða að maður dilli sér örlítið með, sérstaklega á föstudegi. Þessi perla ratar yfirleitt á fóninn í mínum vinahópum.

Góða helgi!

Ég skora á Erlu Vinsý Daðadóttur að koma með næsta föstudagslag.