
Ökunámsdeild kynnti helstu verkefni deildarinnar fyrir þjónustusviði í morgun. Markmið kynningarinnar var að styðja þjónustudeildina svo þau geti svarað fleiri fyrirspurnum sem berast og gefa þeim tækifæri til að spyrja um atriði sem þeim finnst þau vanta meira öryggi í. Einnig að kynna þau verkefni sem eru efst á baugi núna, s.s. endurskoðun ökuprófa og endurskoðun námskrár fyrir endurmenntun atvinnubílstjóra. Þá var farið í helstu reglur og ökuréttindaflokka hvað varðar eftirvagna. Einnig var bent á gagnlegt myndband um eftirvagna sem fræðsludeild gaf nýlega út.
Í lokin kom fram einlæg ósk um að næsta hópefli í SGS gæti verið að allir tækju hið sívinsæla ökupróf til að meta stöðu sína í umferðinni 🙂