
Í föstudagskaffinu s.l. föstudag var farið yfir kynningar- og fræðslumál Samgöngustofu. Viðtalið við Ingvar Ómarsson atvinnumann í hjólreiðum í helgarblaði Fréttablaðsins er gott dæmi um aðferðir sem við notum til að ná til almennings. Öryggis- og fræðsludeild bentu ritstjóra helgarblaðsins á að taka viðtal við Ingvar og beðið var um að lögð væri sérstök áhersla á hjálmanotkunina og álit hans á mikilvægi hjálmanotkunar við hjólreiðar. Það tókst frábærlega og gaman að segja frá því að þetta er fjórða forsíðuviðtalið sem næst að koma að í Fréttablaðinu þar sem öryggismál eru undirliggjandi umfjöllunarefni.
Viðtalið má nálgast hér á vef Fréttablaðsins en við setjum það líka hér inn að neðan:
Ingvar: „Þeir horfðu á mig og voru handvissir um að þetta væri búið spil“
Ingvar Ómarsson atvinnuhjólreiðamaður segir í viðtali við helgarblað Fréttablaðsins frá alvarlegu slysi sem hann varð fyrir þegar ferillinn var að hefjast árið 2015.
Ingvar er handhafi fjölmargra Íslandsmeistaratitla í hjólreiðum auk þess að vera okkar fyrsti og eini atvinnumaður í greininni. Litlu munaði þó að endi væri bundinn á þann feril í upphafi hans með alvarlegu slysi í Rotterdam. Segja má með vissu að án hjólreiðahjálms væri Ingvar ekki til frásagnar hér.
Rúmum mánuði eftir að Ingvar flutti til Rotterdam árið 2015 til að einbeita sér að atvinnumennsku í hjólreiðum lenti honum saman við mótorhjól á 80 kílómetra hraða. Ingvar kastaðist heila tuttugu metra, lenti á höfðinu og töldu sjúkraflutningamenn hann látinn þegar þeir komu á staðinn. Ingvar væri ekki til frásagnar um slysið hefði hann ekki verið með hjálm en gera þurfti tvær stórar aðgerðir á höfði hans til að forða honum frá lömun eða dauða.
En að degi slyssins örlagaríka, 11. nóvember 2015:
„Ég man ekki eftir deginum sjálfum en man eftir kvöldinu á undan. Ég hafði planað að hjóla svakalegan 120 kílómetra hring í borginni, hálfa leið í átt að landamærum Belgíu. Þetta var þremur dögum eftir Evrópumótið og ég var kominn á glænýtt götuhjól. Þetta var fyrsti hjólatúrinn á þessu hjóli og ég að hefja æfingaferlið fyrir sumarið á eftir.“
Hjólatúrinn átti að taka um fjórar klukkustundir og er frásögn Ingvars byggð á skýrslum lögreglu enda man hann eins og fyrr segir ekkert frá deginum né slysinu sjálfu.
„Ég var kominn að einum aðalveganna þar sem er grænt ljós og ég kem af minni vegi. Þar er bíll fyrir sem heftir útsýnið. Ég kem öðrum megin við hann en hinum megin kemur mótorhjól á 80 kílómetra hraða. Ökumaður mótorhjólsins hefur engan tíma til að bremsa og fer bara á fullri ferð á mig. Ég kastast yfir 20 metra, sem er rosaleg vegalengd og ég átti erfitt með að trúa henni. Ég var bara farinn yfir í næsta póstnúmer,“ lýsir hann með tilþrifum.
Þyrla og sjúkrabíll send af stað
Ingvar lenti á þjóðveginum og líklega beint á höfðinu. „Ég hef verið á svona 20 kílómetra hraða enda svolítið að passa mig á leið inn á aðalveginn. Við vorum báðir jafn sekir og engum kennt um enda hafði bíllinn blokkað sjón beggja.
Þetta var greinilega það alvarlegt að það fer af stað svolítið fyndinn prósess,“ segir Ingvar sem er feginn að slysið hafi orðið í Hollandi. „Þegar svona svakalega alvarlegt slys verður fer af stað ferli sem aðeins er notað þegar um konungsfjölskylduna eða mjög alvarleg slys er að ræða. Þá er kölluð út bæði þyrla og sjúkrabíll og sá sem er fyrr á staðinn bregst við.“

Í þetta skiptið var sjúkrabíllinn undan á vettvang og leist sjúkraliðunum ekki á blikuna fyrst um sinn. „Þeir horfðu á mig og voru handvissir um að þetta væri búið spil.“
Fékk konunglega þjónustu
Miðað við áverka lenti Ingvar á höfðinu enda lítið um önnur meiðsl og í raun aðeins handleggsbrot sem ekki var sinnt almennilega fyrr en síðar.
„Það var ekki einu sinni verið að spá í því – enda ekki aðalatriði. Ákveðið var að sjúkrabíllinn sem var fyrri til flytti mig á sjúkrahúsið og þá lokar lögreglan öllum vegum inn og út úr borginni. Þetta gera þeir fyrir konungsfjölskylduna og alvarleg slys svo ég fékk „royal treatment“,“ segir hann í léttum tón.
„Á meðan þetta er í gangi eru læknar spítalans mættir á neyðarfund því sjúkraliðunum virtist um tvo höfuðáverka að ræða sem vanalega er ekki gerð aðgerð á samtímis. Ég var höfuðkúpubrotinn, auk þess sem það var blæðing bæði utan og innan á hauskúpu,“ segir Ingvar og sýnir um 12 sentimetra langt ör á höfðinu.
„Í millitíðinni er hringt í kærustuna mína, sem fær afskaplega leiðinlegt samtal við komuna á spítalann, en læknirinn segir við hana: „Hann er að fara í aðgerð. Til öryggis skaltu fara og kveðja hann.“
Það var kannski ekki skrítið enda metið að einhverjar 10 prósent líkur væru á að ég lifði aðgerðina af.“
Er í lagi með hjólið mitt?
Eftir kveðjustundina fór Ingvar beint í aðgerð enda mátti engan tíma missa.
„Aðgerðin gekk augljóslega glimrandi vel. Ég man svo fyrst eftir mér að borða morgunmat, í spítalarúmi, tveimur dögum síðar.“ Ingvar var þá löngu vaknaður en man ekki eftir sér fyrr. „Ég var á spítala í þrjár vikur en fyrstu vikuna gat ég hvorki gengið né setið. Ég átti mjög erfitt með að borða og mundi lítið. Ég þekkti fólk ekki. Það var eins og ég þekkti foreldra mína en samt ekki. Ég átti erfitt með að segja hvar ég væri.
Ingvar segist eiga svolítið erfitt með að lýsa líðaninni og ástandinu fyrstu vikurnar. „Þetta er ekki svart og hvítt. Maður er svolítið on/off. Ég man vel eftir einu spaugilegu atviki, því ég hafði greinilega nógu mikið vit á að spyrja læknana mjög fljótlega eftir að ég vaknaði: Er í lagi með hjólið mitt? Eitthvað var því enn tengt í hausnum,“ segir hann í léttum tón.