
Vorboðarnir ljúfu, sumarstarfsfólkið er nú byrjað mæta til starfa. Alls hafa sjö af þeim þrettán sem ráðin voru hafið störf og önnur munu skila sér eitt af öðru á næstu dögum.
Aðkoma þeirra er nauðsynleg til að við getum tekið orlof og hlaðið batteríin.
Nokkrir vorboðar náðust á mynd í mötuneyti 19. maí.
Á myndinni eru (frá vinstri):
- Karen Eva Ómarsdóttir, þjónustudeild
- Sara Stefánsdóttir, þjónustudeild
- Elín Edda Guðmundsdóttir, þjónustudeild
- Kara Ásta Magnúsdóttir, þjónustudeild
- Ingibjörg Sigurðardóttir, fjármáladeild
- Arnar Snær Pálsson, fjármáladeild
Aron Dagur Beck, skipatæknideild hefur einnig hafið störf en náðist ekki á mynd að þessu sinni, þegar öll verða mætt verður gerð tilraun til að festa þau öll á filmu 📸 🙂