Viðtal við Einar Magnús í Fréttablaðinu í dag

Einar Magnús er í viðtali í Bílablaði Fréttablaðsins í dag í tilefni Vorfagnaðar bifhjólaflokks sem sem Samgöngustofa hélt í samstarfi við Sniglana og Ökukennarafélagið.

Viðtalið/greinin:

Á sumardaginn fyrsta hélt Samgöngustofa í samstarfi við Sniglana og Ökukennarafélagið í fyrsta sinn svokallaðan Vorfagnað bifhjólafólks. Að sögn Einars Magnúsar Magnússonar, sérfræðings hjá öryggis- og fræðsludeild Samgöngustofu, hefur verið samstarf milli þeirra og Sniglanna um árlegan vorfund þar sem farið er yfir slysatölfræði bifhjólafólks. „Nú í ár langaði okkur að taka þetta lengra og fengum til liðs við okkar Ökukennarafélag Íslands og bifhjólakennara á þess vegum. Hugmyndin var að bjóða bifhjólafólki upp á vorfagnað þar sem boðið væri upp á fræðslu, æfingar og kennslu sem búið gæti bifhjólafólk sem best undir sumarið sem vitanlega er sá tími sem flestir eru á ferðinni á bifhjólum,“ sagði Einar.

Ökukennarafélagið bauð afnot af Ökuskóla 3 fyrir fundinn en þar er stórt æfingasvæði á braut Kvartmíluklúbbsins. „Í stuttu máli tókst í frábæru samstarfi við Sniglana, ökukennara, Ökuskóla 3 og Ökukennarafélagið að gera eftirminnilegan og gagnlegan dag sem ég held að muni lengi verða í minnum hafður. Þetta var hreint út sagt frábær dagur og eiga þessir aðilar miklar og góðar þakkirskildar fyrir framlag sitt,“ sagði Einar enn fremur.

Auk þessa flutti Einar erindi um þróun slysatölfræði meðal bifhjólafólks en í því kom fram að í dag eru mun minni líkur á slysum meðal bifhjólafólks. „Ljóst er að nú er mun betra og reynslumeira bifhjólafólk í umferðinni og almennt held ég að vitund almennra ökumanna sé mun meiri fyrir umferð bifhjólafólks en áður var. Í erindinu var jafnframt lögð mikil áhersla á notkun viðurkennds hlífðarfatnaðar sem væri merktur evrópskum CE-stöðlum en rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur lagt ríka áherslu á það í ljósi fjölda banaslysa og alvarlegra slysa þar sem slíkur búnaður var ekki notaður,“ sagði Einar að lokum.