Föstudagslagið í boði Friðriks

Manstu eftir Rebeccu Black sem gerði lagið „FRIDAY“? - Hún er komin með  nýtt lag! -

Það er hann Friðrik Hjörleifsson sem velur föstudagslagið þessa vikuna:

Friday með Rebekku Black er á efa mesta og besta föstudagslag síðari ára.
Lagið skapar einstaka stemningu í föstudags-ísbíltúrnum, sérstaklega á blæjubíl, en annars með alla glugga opna! Á fyrri vinnustað sem var líka virðuleg ríkisstofnun spilaði deildin mín þetta lag á hverjum föstudegi eftir hádegismat í opnu 30 manna rými.

Ég hendi boltanum til Halldórs Zoega, samt bannað að velja Dire straits eða ZZ top eða álíka