
Í maí mun Samgöngustofa í samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg framkvæma könnun við valda stíga á höfuðborgarsvæðinu. Undanfarin ár hefur umferð meðal ökumanna á akbrautum verið könnuð en með þessari könnun er ætlunin að fá sem besta mynd af stöðunni utan akbrauta á göngu- og hjólastígum á höfuðborgarsvæðinu. Farartæki sem fara um stíginn eru skráð og hvort að ökumaður sé með hjálm, aldur og kyn skráð, hvort að ökumaður horfir eða heldur á síma, hvort að það sé farþegi auk ökumanns á farartæki og þá hvort að farþeginn sé með hjálm. Ætlunin er að framkvæma könnunina með sama hætti næstu árin til að geta fengið sem besta mynd af þróun hegðunar á göngu- og hjólastígum.

Það eru unglingadeildir Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu sem sjá um að kanna en undanfarin ár hafa Samgöngustofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg tekið höndum saman og lagt áherslu á ungt fólk (15-20 ára) í umferðinni. Ráðstefnur, vinnustofur og málþing hafa verið haldin og sóttu fulltrúar Samgöngustofu og Landsbjargar, ásamt fjórum ungmennum, alþjóðlega ráðstefnu um umferðaröryggi sem haldin var í Svíþjóð árið 2020. Í aðdraganda ráðstefnunnar var vinnustofa fyrir ungmenni undir merkjum YOURS (Youth for Road Safety). Þar var áherslan á að virkja unga fólkið til aðgerða með aukinni þátttöku og stefnumótun með það að leiðarljósi að fræða jafnaldra um umferðaröryggi. Könnunin fer fram á sama tíma og verkefnið Hjólað í vinnuna stendur yfir þannig að það má búast við talsverðri umferð um stígana.