Fréttir af ráðningarmálum

Fyrir páska var gengið frá nokkrum ráðningum sem er mikið gleðiefni.

Erla Vinsý Daðadóttir hóf störf 19. apríl sl. Erla Vinsý mun starfa sem lögfræðingur í lögfræðideild á stjórnsýslu- og þróunarsviði. Erla Vinsý er með BA og Mag.jur í lögfræði frá Háskóla Íslands. Nú síðast starfaði hún sem aðstoðarmaður dómara hjá Landsrétti. Hún starfaði einnig hjá WOW air sem flugliði og á lögfræðisviði fyrirtækisins árin 2016-2019.

Haraldur Kristinsson Thorlacius mun hefja störf 1. júlí nk. sem verkefnastjóri hugbúnaðarþróunar. Haraldur er með BA próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og BS próf í Computer Science and Business Administration frá Copenhagen Business School. Hann er einnig með diploma nám í forritun og kerfisfræði frá NTV og IPMA D vottun í verkefnastjórnun. Frá árinu 2017 hefur Haraldur unnið sem verkefnastjóri hjá Þjóðskrá Íslands.

Magnús Elíasson mun hefja störf 1. júlí nk. sem forritari í upplýsingatæknideild. Magnús er með BS í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Magnús starfar í dag sem Senior Software Developer hjá Betware. Magnús mun starfa í Vestmannaeyjum.

Aðrar ráðningar sem eru í gangi eru; sérfræðingur í skipatæknideild, hafnarríkiseftirlitsmaður í skipaeftirlitsdeild og eftirlitsmaður umferðarmannvirkja, afleysing fyrir Eddu Doris.