
Nú er tilbúin fræðslumyndin „Ekið með eftirvagn“ þar sem farið er yfir mikilvæg öryggisatriði sem vert er að skoða áður en lagt er af stað með eftirvagn. Myndin er byggð á upplýsingum sem koma fram á vefnum okkar www.samgongustofa.is/eftirvagnar og er gefin út með íslenskum, enskum og pólskum texta.
Myndin verður aðgengileg á vefnum, á Youtube, samfélagsmiðlum og fer í birtingu með öðrum fræðslumyndum á RÚV. Samhliða útgáfunni verður vakin athygli breyttum skoðunarmánuði fyrir eftirvagna (sem nú er í maí en var áður í ágúst) og sérstök herferð og umfjallanir fyrir hvítasunnuhelgina sem er í byrjun júní og svo áfram út sumarið.