
Slysaskýrsla umferðarslysa, sem öryggis- og fræðsludeild Samgöngustofu hefur tekið saman fyrir árið 2021, er komin út. Að baki liggur mikil vinna við greiningu og skráningu lögregluskýrlsna og hefur Þorbjörg Jónsdóttir sinnt því af miklum dugnaði. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar útbjó skýrsluna en hún er notuð m.a. til greiningar á atriðum sem leggja þarf sérstaka áherslu á í forvörnum og fræðslu.
Skýrsluna má finna hér á vef Samgöngustofu. Árið 2021 var mjög sérstakt ár, bæði hvað varðar umferðaröryggi en einnig þjóðfélagið í heild. Var þetta annað árið í röð þar sem heimsfaraldurs gætti en árin 2020 og 2021 eru þó gerólík hvað varðar umferðaröryggið. Um töluverða aukningu slysa og slasaðra er að ræða. Fjöldi slasaðra og látinna í fyrra voru 1162 einstaklingar en árið á undan voru það 1015. Árið í fyrra er reyndar undir 10 ára meðaltali frá 2012 til 2021 sem er 1219 og má því segja að til lengri tíma litið sé þróunin í rétta átt.
Fjöldi látinna og alvarlega slasaðra eykst fer úr 157 árið 2020 í 208 árið 2021 sem er um 32,5% hækkun. Meira er nú um að ungir ökumenn séu að lenda í slysum en árin á undan. Talsverð aukning er í fjölda slasaðra óvarinna vegfarenda og þá sérstaklega á rafhlaupahjólum. Minna er um aði börn á aldrinum 0 – 14 ára slasist. Sérstaklega fækkar slösuðum börnum í bifreiðum en hinsvegar fjölgar aðeins slösuðum börnum sem eru gangandi og hjólandi í þessum aldurshópi. Slysum sem rekja má til vanrækslu á notkun öryggisbelta fækkar og alvarlegum slysum og banaslysum vegna ölvunar og fíkniefnaaksturs fækkar.
Slys af völdum rafhlaupahjóla eru 16,8% af heildarfjölda alvarlega slasaðra og látinna í umferðinni 2021. Í viðhorfskönnun sem Samgöngustofa lét gera kemur fram að 31,6% fólks (18-24 ára) hafa ekið rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis. 42% landsmanna prófað rafhlaupahjól og af þeim hafa 29% notað þau undir áhrifum áfengis. Það þýðir að 12,2% af allri þjóðinni (18 ára og eldri) hafa notað rafhlaupahjól undir áhrifum áfengis.Í sömu könnun má sjá slaka í viðhorfi fólks til þeirrar ábyrgðar sem felst í notkun öryggisbelta, að aka ekki eftir neyslu áfengis og nota ekki snjalltæki við akstur svo dæmi séu nefnd. Í raun má segja að slysatölurnar endurspegli að mörgu leyti þetta viðhorf.
.