
Á síðasta ári fór í loftið fyrsta útgáfa nýrrar kortasjár Vegagerðarinnar fyrir sjófarendur, sjolag.is. Vefnum er ætlað að uppfæra eldri spákort Veðurs og sjólags, á vef Vegagerðarinnar. Með vefnum er þjónusta við sjófarendur aukin til muna auk þess sem gögn úr mælitækjum og spár eru gerðar aðgengilegar í vefþjónustum. Um sinn verða gömlu spákortin enn aðgengileg á sínum stað á Vegagerðin.is.
Upphafið
Siglingastofnun þróaði upplýsingakerfi um veður og sjólag til notenda á hafi upp úr aldamótum 2000. Kerfið skiptist annars vegar í mælingar (öldudufl og veðurstöðvar) og hins vegar í spár (öldu- og veðurspá og sjávarfallaspá). Við sameiningu hluta Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar árið 2013 tók Vegagerðin við þessu kerfi.
Hafnadeild Vegagerðarinnar hefur bætt við sértækum ölduspám á grunnslóð við þetta kerfi og til þess nýtt öldulíkön. Þau sýna ítarlegri spár um ölduhæð á völdum stöðum við landið sem úthafsölduspáin náði ekki yfir.
Niðurstaða heils árs vinnu
Vinna við þessa uppfærslu hefur verið í gangi síðastliðið ár. Vinnan hefur aðallega snúist um að setja upp þysjanlega kortasjá á vefnum þar sem hægt er að birta flest gögn og spákort í upplýsingakerfi Veðurs og Sjólags á einum stað, á einu korti. Úthafsölduspáin frá Evrópsku Veðurstofunni (sem var fengin í gegnum Veðurstofu Íslands) var uppfærð og hún er í hærri upplausn þannig að hún sýnir stærra svæði í kringum landið með hærri tímaupplausn.
Grunnslóðalíkönum var fjölgað og bætt við sömu kortasjá en þar má einnig sjá mælingar úr duflum og veðurstöðvum auk sjávarfallaupplýsinga.
Læsileiki vefsins og aðgengi var stórbætt, til dæmis fyrir þá sem eiga erfitt með að greina liti.
Til stendur að bæta við vefmyndavélum sem vísa út á sjó, koma að frekari upplýsingum um hafnirnar og mælingar á sjávarhæð og öldum í þeim. Mögulega verða einnig gerð sértæk sjávarfallalíkön á völdum stöðum en auk þess eru enn fleiri hugmyndir á lofti um þróun vefsins í framtíðinni. Með tilkomu nýs vefs Vegagerðarinnar verður upplýsingakerfið Veður og Sjólag svo í heild sinni uppfært.
Sjá nánar frétt á vef Vegagerðarinnar