Almenningssamgöngur á landsbyggðinni

Vegagerðin stendur fyrir morgunverðarfundi um almenningssamgöngur á landsbyggðinni 31. mars 2022 klukkan 9.

Vegagerðin stendur fyrir morgunverðarfundi um almenningssamgöngur á landsbyggðinni fimmtudaginn 31. mars klukkan 9. Fundurinn fer fram í húsnæði Vegagerðarinnar í Suðurhrauni 3 í Garðabæ en einnig er hægt að fylgjast með í beinu streymi.

Vegagerðin hefur það verkefni að fylgja eftir stefnu stjórnvalda í almenningssamgöngum. Vegagerðin ber þannig ábyrgð á heildstæðu leiðarkerfi með ferjum, ríkisstyrktu flugi og almenningsvögnum á landsbyggðinni og að tryggja þannig örugga tengingu á milli byggðarlaga.

Á morgunverðarfundinum verður kynnt hvernig starfi Vegagerðarinnar í þessum málum er háttað og hvað framtíðin gæti borið í skauti sér. Einnig verður fjallað um Herjólf sem er dæmi um það þegar almenningssamgöngur eru eina leiðin til og frá byggðarlagi.

Dagskrá

  • Af hverju sinnir Vegagerðin almenningssamgöngum? – Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar.
  • Framtíð almenningssamgangna á landsbyggðinni. – Halldór Jörgensen, forstöðumaður almenningssamgöngudeildar Vegagerðarinnar.
  • Herjólfur, þjóðvegur á hafi – Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf.

Morgunverðarfundurinn fer fram í húsnæði Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ klukkan 9.

Hægt er að skrá sig á fundinn hér.

Beint streymi verður frá fundinum sem má fylgjast með hér:  https://youtu.be/zY8s6cn0ePc