Er ekki bara nóg að sópa oftar?

Umhverfisstofnun kynnir opinn fyrirlestur um áhrif nagladekkja á loftgæði og gatnaslit miðvikudaginn 16. mars kl. 12:15 í beinu streymi.

Viðburðurinn á Facebook

Í fyrirlestrinum veltum við upp eftirfarandi spurningum:

  • Er ekki bara nóg að sópa göturnar oftar?
  • Skipta nagladekkin einhverju máli?
  • Hvað er rykbinding?
  • Skiptir máli hversu hratt er ekið?

Við fjöllum um svifryksmengun frá vegyfirborði og áhrif umferðar á magn svifryks. Við beinum sjónum að notkun nagladekkja, gatnaþrifum og rykbindingu.

Opið verður fyrir spurningar frá þátttakendum.

Fyrirlesturinn flytur Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í teymi loftgæða og losunarheimilda hjá Umhverfisstofnun.

Hluti af stefnu Umhverfisstofnunar er að stuðla að grænu og framsýnu samfélagi. Í því felst m.a. að veita góð ráð varðandi umhverfisvænan lífsstíl.

Ekki missa af áhugaverðum fyrirlestri um umhverfismál á mannamáli!

Heimasíða Umhverfisstofnunar

Viðburðurinn á Facebook