
Nýtt ábendingakerfi er partur af CCQ gæðakerfinu og kemur til með að þjóna okkur sem innra ábendingakerfi. Undir innri ábendingar flokkast t.d. almennar ábendingar sem geta varðað ýmislegt svo sem umbætur á starfsumhverfi okkar, tilkynningar um frábrigði á verklagi og ábendingar vegna jafnlaunavottunar. Jafnlaunaábendingar, ábendingar um vinnuöryggi og ámælisverða háttsemi eru aðgangsstýrðar þannig að einungis mannauðsstjóri hefur aðgang að innsendum ábendingum. Valkvætt er að gefa upp persónurekjanlegar upplýsingar. Aðrar ábendingar berast gæðastjóra sem útdeilir eftir eðli máls. Tilkynningar um frábrigði berast gæðastjóra og er hugsað til að bæta starf okkar með stöðugum umbótum.
Samhliða innleiðingu vantar okkur hins vegar gott nafn fyrir ábendingakerfið og hefur því verið ákveðið að setja af stað nafnasamkeppni. Markmið keppninnar er að finna gott nafn fyrir ábendingakerfið og hvetja starfsmenn til að kynnast kerfinu með því að senda inn tillögu að nafni í gegnum ábendingakerfið.
Nafnasamkeppnin hefst samhliða opnun á nýjum innri vef og lýkur 21. mars. Dómnefnd mun velja fimm álitlegustu tillögurnar sem starfsmönnum mun síðan gefast kostur á að kjósa um á innri vef. Veitt verða verðlaun fyrir það nafn sem hlýtur fyrsta sæti og hlýtur vinningshafi gjafabréf að fjárhæð 20.000 kr. á Kol. Komi til þess að fleiri en einn eigi sömu tillögu sem hlýtur fyrsta sæta mun dómnefnd draga þann aðila sem hlýtur gjafabréfið en færa hinum sem áttu sömu tillögu annan glaðning.
Í dómnefnd sitja fulltrúar allra sviða:
Jón Gunnar Jónsson
Sigrún Henríetta Kristjánsdóttir
Leifur Gústafsson
Rakel Björk Benediktsdóttir
Rannveig Garðarsdóttir
Tillaga að nafni er sett í dálkinn “efni”. Athugið að ekki er þörf á að setja inn frekari upplýsingar í dálkinn þar fyrir neðan, ekki nema tillaga ykkar kalli á frekari skýringar.
