
Eins og kom fram í kynningunni í morgunkaffinu þá fer nýr innri vefur í loftið á mánudaginn. Fram að því getið þið skoðað nýja vefinn á eftirfarandi slóð:
http://dev-innri.samgongustofa.is/
Við viljum fá sem flestar ábendingar um hvað betur má fara á vefnum og hugmyndir um nýtt efni sem ykkur finnst vanta á vefinn eru vel þegnar. Slíkt má gjarnan senda á vefur@samgongustofa.is. Einnig megið þið gjarnan senda okkur upplýsingar um það sem er að gerast í ykkar deildum og á erindi í Hvað er planið, slíkt má senda á samskipti@samgongustofa.is eða nota eyðublaðið sem þið getið nálgast á ábendinarhnappnum á nýja vefnum.
Innri vefurinn er samvinnuverkefni okkar allra og það er undir okkur komið hvort hann verði gagnlegur og líflegur vettvangur innra starfs.