Föstudagslagið í boði Nínu

Hún Nína Dís í Nortype tók áskoruninni um að velja föstudagslagið þessa vikuna og um val sitt segir hún:

Ég verð að viðurkenna að skemmtun sé ekki ofarlega í huga akkúrat núna þar sem mest umtalaða veira síðustu ára náði í skottið á mér í vikunni og ligg ég því upp í sófa í mikilli sjálfsvorkunn. Búin að horfa á allt sem allar efnisveitur heimilisins bjóða upp á og þá var bara eins gott að skrifa nokkrar línur.

Föstudagar eru mjög heilagir hjá fjölskyldunni minni af því það eru pizzudagar. Þá eldar maðurinn minn dýrindis pizzu fyrir fjölskylduna og við fögnum því að nú sé komið helgarfrí og tölum saman um líðandi viku. Pizzan var einmitt ástæðan fyrir því að ég og maðurinn minn kynntumst. Þegar við vorum unglingar unnum við saman á pizza 67 á Ísafirði og ástin kviknaði í eldhúsinu. Þann 22 febrúar sl. ákváðum við að hoppa í „drop in brúðkaup“ í Grafarvogkirkju og núna erum við hjón eftir 20 ára samband.

Þá er vel við hæfi að velja lagið okkar sem við dönsuðum eins og kjánar við í „gamla daga“. No limit með 2 unlimited.

Ég skora á Sigríði Guðrúnu með næsta lag en maðurinn hennar Addi tók einmitt þessa mynd að ofan 🙂