Samráðsfundur SGS, Isavia og LHG

Árlegur samráðsfundur SGS, Isavia og LHG um stjórnun og sveigjanlega notkun loftrýmis var haldinn í dag, 9. mars 2022. Á dagskrá var að ræða og meta reynslu Isavia ANS, Landhelgisgæslu Íslands og Samgöngustofu af gildandi fyrirkomulagi um stjórnun og sveigjanlega notkun loftrýmis. Í orðunum „sveigjanleg notkun loftrýmis“ felst að stjórna skal loftrýminu þannig að komið sé til móts við þarfir bæði almenningsflugs (borgaralegs flugs) sem og herflugs en Landhelgisgæslan sinnir því verkefni að vera tengiliður við erlenda heri sem koma til Íslands til að stunda ýmist loftrýmisgæslu fyrir hönd NATO eða heræfingar.

Á fundinum var einnig lagt mat á hvort endurskoða þurfi gildandi starfsaðferðir eða skipulag loftrýmisins yfir Íslandi í því skyni að viðhalda skilvirkri og sveigjanlegri notkun loftrýmis. Á fundinum kom m.a. fram að með breytingum á flugvélaflota flugrekenda (borgaralegs flugs), með auknum fjölda langdregnari loftfara sem einnig fljúga hærra en eldri tegundir skapast möguleikar á að þjónusta betur herflug án þess að það komi niður á borgaralegu flugi.

Á fundinum kom einnig fram að flugumferð er óðum að komast í það horf sem hún var í árið 2019, fyrir tíma COVID.