
Laugardaginn 31.05.2025 framkvæmdi hafnarríkiseftirlitið skoðun um borð í flutningaskipinu Musky (IMO 9688855) í Straumsvík. Skipið siglir undir fána Marshall-eyja og hefur 19 manns í áhöfn.
Við skoðun kom í ljós að matvara um borð var nánast engin og það litla sem til var hafði að mestu skemmst. Áhöfnin hafði því orðið fyrir matarskorti síðustu 3-4 daga siglingarinnar frá Brasilíu til Íslands.
Vegna þessa ástands var skipið kyrrsett. Skilyrði fyrir afléttingu var að matvæli til hið minnsta 30 daga væru komin um borð.
Þessi gerð skipa er að mörgu frábrugðin öðrum, því oft liggur ekki fyrir hver næsta viðkomuhöfn verður. Í þessu tilfelli er óljóst hvert skipið fer næst. Mögulegir áfangastaðir eru meðal annars Ástralía, sem krefst um 40 daga siglingar með a.m.k. einni viðkomu á leiðinni, eða Suður-Ameríka sem tekur um 25 daga.
Hlutverk hafnarríkiseftirlitsins er að tryggja öryggi m.a. skipsáhafna með því að kanna aðbúnað um borð. Að öðru leyti en þessu reyndist hann vera í lagi. Kyrrsetningu skipsins var aflétt í fyrradag, eftir að gengið hafði verið úr skugga um að vistir fyrir rúmlega mánuð væru komnar um borð.