
Það hefur verið skammt stórra högga á milli í banaslysum í umferð, eins og forsíða Morgunblaðsins sýndi í dag. Eru þau nú orðin sex talsins á árinu.
Í Kveik sl. þriðjudag var fjallað um farsímanotkun undir stýri. Í framhaldinu hafa þau á RÚV verið að velta fyrir sér snertiskjám sem eru hluti af stjórntækjum margra nýrra bíla. Skýrt er í umferðarlögum að snjalltæki má ekki nota við akstur nema handfrjálst. Í nýjum bílum þarf hins vegar að nota skjá til að stýra t.d. loftræstingu og rúðuþurrkum. Mikilvægt er þá fyrir ökumann að stilla það af sem hægt er að gera áður en haldið er af stað, s.s. tónlist og leiðsögutæki og vera meðvitaður um hættuna sem hlýst af því þegar athyglin fer af veginum. Samgöngustofa hefur tekið virkan þátt í þessari þörfu umræðu hjá RÚV og aðstoðað við umfjöllunina með t.d. samantekt margvíslegra gagna.