
Frá og með 1. maí mun Samgöngustofa beina eigendaskiptum ökutækja yfir í stafrænt ferli. Markmiðið er að einfalda umsýslu og auka öryggi.
Pappírsferlið verður áfram í boði en afgreiðsla þess getur tekið allt að 7 daga þar sem aukin áhersla verður lögð á að tryggja öryggi og áreiðanleika gagna. Af þessum sökum hefur Samgöngustofa óskað eftir því að skoðunarstofur hætti að taka á móti eigendaskiptum á pappír frá og með 1. maí nk.
Viðskiptavinir eru hvattir til að nota stafræna ferlið, sem er einfalt og öruggt á heimasíðu stofnunarinnar.
Hér má sjá nýja frétt á vefnum okkar um stafræn eigendaskipti ökutækja frá 1. maí.