Harpa tekur sæti í stjórn Landsnets

Harpa Þuríður hefur tekið stjórnarsæti í nýkjörinni stjórn Landsnets að beiðni fjármála- og efnahagsráðherra. Stjórnin var valin á grunni nýs verklags sem á að tryggja að tilnefndir stjórnarmenn veljist á grundvelli hæfni, menntunar eða reynslu. Þar er líka kveðið á um að stjórnarmenn skulu vera óháðir fyrirtækinu og stjórnendum þess, séu hvorki starfsmenn fyrirtækisins né kjörnir fulltrúar á Alþingi eða í sveitarstjórnum.

Landsnet er þjónustufyrirtæki í eigu þjóðarinnar. Hlutverk fyrirtækisins er að viðhalda og reka flutningskerfi raforku.

Til hamingju!