Áskriftarblöð í miðrýmum
Samgöngustofa er með áskrift að Viðskiptablaðinu (með Fiskifréttum) og Heimildinni. Við erum með eina prentútgáfu af hvoru riti og er markmiðið að tryggja að sem flestir geti notið góðs af þeim.
Blöðin eru lögð fram í kaffirýmum:
- Fiskifréttir eru í kaffirými á 3. hæð
- Viðskiptablaðið og Heimildin eru í kaffirými á 2. hæð
Vikublöð sem þessi ná oft að fjalla um mál af meiri dýpt en almennir vefmiðlar gera. Við hvetjum þau sem vilja að kíkja í blöðin á staðnum og láta þau liggja áfram í kaffirýmunum, svo þau séu aðgengileg öllum. Takk fyrir að virða þetta fyrirkomulag.
