
Í kjölfar funda hér í Ármúla með fulltrúum KFOR, alþjóðlegu friðargæsluliði NATÓ í Kósovó, þáðum við heimboð þeirra. Tilgangur heimsóknar fulltrúa Samgöngustofu dagana 18. – 21 mars var að fylgjast með málum sem tengjast stjórnun loftrýmisins og þróun frávika sem hafa verið opnuð í fyrri heimsóknum.

Í heimsókninni hittu okkar menn, Þröstur, Lorik og Guðbjörn, meðal annars COM KFOR, sem er æðsti herforingi NATO/KFOR í Kósovó. Hann hrósaði verkefni Samgöngustofu sem mikilvægu til að tryggja öryggi í loftrýminu. Einnig var fundað með ráðherra samgöngumála hjá Kósovó ásamt fulltrúum NATO/KFOR, þar semrædd var frekari þróun og samvinna í tengslum við verkefnið.
Verkefnið telst til borgaralegs framlags Íslands til stuðnings öryggis og stöðugleika innan NATO. Markmið Samgöngustofu er staðla loftrýmið (e. Normalization of the airspace), tryggja hlítni við evrópskt og alþjóðlegt regluverk og stuðla að auknu öryggi og skilvirkni í loftrýminu.