Nýr teikningaskanni skjaladeildar

Ísrael við skannan góða

Fyrr á árinu tók skjalateymið í notkun nýjan teikningaskanna, þar sem sá eldri hafði gefist upp eftir langan starfsaldur. Þegar flett var upp hvenær sá gamli hefði verið keyptur, kom í ljós að hann hafði verið á markaði árið 1999. Hann hafði þess vegna þjónað vel og dyggilega eftir glaum aldamótaáranna.

Sá nýi er nokkuð hraðvirkari og þægilegri í notkun, eins og búast mátti við og það er mikill munur að geta unnið með teikningar í nútíma stýrikerfi. Það eru helst skipateikningar sem fara í skannann. Í morgun þurfti þó að skoða húsateikningar fyrir Ármúla 2. Við það tækifæri var smellt þessari mynd af Ísrael að renna teikningu í gegnum skannann.

Skanninn er stilltur þannig að tiff afrit fara beint inn á drif. Notendur geta síðan skoðað myndir sem tiff eða breytt þeim í pdf skjöl. Það er ekki hægt að prenta út úr þessum skanna. Starfsmenn verða að að láta sér nægja þá prentara sem eru hér og ráða við A3 og A4 stærðir eða fara á prentstofu ef þau þurfa stærri útprentanir.

Skanninn er með vinnslubreidd upp á tæpan metra, sem þýðir að hann getur tekið teikningar upp að A0 að stærð, á styttri hlið teikningar. Hann er af gerðinni Colortrac SmartLF Sci og við vonum að hann muni þjóna dyggilega eins og fyrirrennarinn eitthvað fram eftir öldinni.