
Nú er sjötta rafræna veggspjaldið í röðinni 12 hnútar komið út og er umfjöllunarefnið nú sú hætta sem sjómenn geta staðið frammi fyrir ef vöntun er á nauðsynlegum öryggisbúnaði. Það að tiltækur öryggisbúnaður sé fyrir alla um borð í skipum getur skipt sköpum á ögurstundu.
Líkt og áður hefur komið fram er með þessum veggspjöldum reynt að koma í veg fyrir að mannlegir þættir eins og gleymska, kæruleysi, gömul og úreld viðhorf og margt fleira í mannlegu eðli dragi úr öryggi sjómanna. Við hvetjum alla sjómenn og sjófarendur til að kynna sér þetta og skoða sérstaklega þær fyrirbyggjandi aðgerðir sem tilgreindar eru á spjaldinu.
Athuga skal reglulega ástand öryggisbúnaðar og hvort nóg sé af honum fyrir alla um borð. Betra er að hafa of mikið af honum en of lítið. Einnig er mikilvægt að um borð í bátnum eða skipinu séu verkfæri og varahlutir sem hægt er að grípa til ef eitthvað bilar. Einnig er mikilvægt að menn kynni sér nýjungar í öryggisbúnaði og tileinki sér þær.
12 hnútar eru unnið með helstu sérfræðingum í öryggismálum sjómanna, sem eru skólastjóri, kennarar og leiðbeinendur Slysavarnaskóla sjómanna. Við viljum þakka sérstaklega fyrir stuðningur ykkur við þetta verkefni en dreifing og kynning á þessu er mjög mikilvæg og getur leitt til mun betri öryggismenningar á sjó.
• Íslenska spjaldið nr. 6 má nálgast á síðunni: www.samgongustofa.is/12hnutar
• Enska spjaldið má nálgast á síðunni: www.icetra.is/12knots