Leiðbeiningar fyrir Contentful – island.is
Til að setja inn efni í Contentful (vefumsjónarkerfi Ísland.is) þarf fyrst að hafa aðgang að kerfinu. Skilyrði fyrir aðgang er að hafa lokið efnisstefnukynningu hjá Stafrænu Íslandi og kennslu á Contentful. Hafið samband á vefur@samgongustofa til þess að spyrjast fyrir um slíkan aðgang
ATH: Ekki ýta á Publish fyrr en fréttin er tilbúin 🙂
1. Byrjið á því að fara í Add entry takkann efst hægra megin á síðunni (eftir að þú ert búin(n) að skrá þig inn):

2. Þá birtist þetta:

A. Þegar er verið að setja inn frétt þarf ekkert að setja inn í reitinn Tilkynning, sjá A á mynd hér að ofan.
B. Undir Organization, ýtið á hnappinn og veljið Samgöngustofa
C. Í Content Status þarf ekkert að vera en ágætt að stilla það á Undifined. Þetta var eitthvað sem var notað í upphafi en er ekki notað lengur nema af einstaka vefstjóra.
D. Setja þarf inn lýsandi og hnitmiðaðan titil á fréttina bæði á íslensku og ensku, endi vefslóðinnar Slug kemur þá sjálfkrafa inn í reitina fyrir neðan. Hægt er að nota þýðingarhnappinn hægra megin á skjánum, Translate to English) og þá þýðist titillinn yfir í enska titilsreitinn. Athugið samt að þessi þýðingarvél er ekki fullkomin og alltaf þarf að fara yfir þýðingarnar og breyta ef þýðingin er ekki góð. Sjá næstu skjámynd:

E. Sluggið er endi vefslóðarinnar (t.d. www.island.is/s/samgongustofa/thettaerbestafrettin) og það á að koma sjálfkrafa þegar titill á íslensku og ensku er kominn inn. Hægt er að breyta slugginu ef það er talið þörf á því, athugið samt að það að breyta sluggi eftir á þegar um síðu er að ræða (ekki frétt) getur valdið brotnum tenginum á vefnum. Best því að fara varlega í það á venjulegum síðum en ætti að vera í lagi í fréttum.
F. Veljið dagsetninguna, dagsetningin í dag birtist fyrst og veljið hana ef það á við.
G. Stutt lýsing á innihaldi fréttarinnar, t.d. fyrsta setningin, þarf að setja inn bæði á íslensku og ensku.
H. Alltaf verður að fylgja með ein mynd í fréttum á Ísland.is. ýtið á Add media og veljið annaðhvort mynd sem þegar er í kerfinu (sem er merkt Samgöngustofu) eða veljið Add new media til þess að setja inn nýja mynd í kerfið. Þegar það er gert þarf að setja inn titil á myndina á íslensku og ensku og svo publisha myndinni áður en áfram er haldið, svo er bakkað aftur í fréttina og hún kláruð.
I. Veljið hvort myndin fylli út í skjáin eða sé 50% og hægrimiðuð.
Skrollið niður og þá er það þetta sem er eftir:

J. Textareitirnir þar sem fréttin sjálf er sett inn og virkar bara eins og flestir aðrir ritlar. Hér þarf að setja inn fréttina bæði á íslensku og ensku eins og allt efni á Ísland.is. Undir Embed er hægt að velja Asset og setja inn myndir og myndbönd í miðjum texta ef þörf er á því.
K. Generic Tag, þarfna verður að velja Generic tag: Samgöngustofa. Svo þetta birtist á síðunni okkar.
Tögg:
Að gefa fréttina út:

Þá er bara að gefa fréttina út og það er gert með því að ýta á Publish takkann. Þegar breytingar eru gerðar á fréttinni (og öðrum síðum) þarf alltaf að ýta aftur á þennan takka sem heitir þá “Publish changes”.

Undir Tags kemur alltaf sjálfkrafa Owner-samgongustofa. Hægt er að bæta við Töggum ef fólk vill t.d. auðvelda sér að leita að fréttinni síðar meir, t.d. með Flugi, Umferð eða siglingum.
1. Finnið greinina á stofnanavef Ísland.is og afritið titil greinarinnar:

2. farið í Contentful og “peistið” titlinum inn í leitina undir greinar/article:

3. Smellið á greinina og þá fáið þið upp rithaminn:

=> Hér breytið þið því sem breyta þarf og muna að breyta alltaf ensku síðunni um leið. Ekki nota Translate to English takkann þegar um litlar breytingar er að ræða þar sem það yfirskrifar alla vinnu við lagfæringu á enska textanum, fer á núllpunkt. Einhver getur hafa unnið í enska texta greinarinnar og verra ef sú vinna fer öll í súginn.
=> Þegar þið eruð búin að breyta því sem þið ætlið að breyta verðið þið alltaf að Publisha breytingunum með því að ýta á Publish changes takkann hægra megin á síðunni, annars fara breytingarnar ekki út á vefinn.
=> Í einhverjum tilfellum hefur verið nokkra sekúnda bið eftir að breytingarnar fara út á vefinn.