Hér má nálgast uppskriftir m.a. frá Bjössa og Hrafnhildi í mötuneytinu. Bon appétit!
Indverskur Linsubaunaréttur, Chinni Churry sósa og kúrbítsklattar

1 lítil sæt kartafla
2 gulir laukar
4 gulrætur
1 msk rifið engifer
pressaður hvítlauksgeiri
1,5 bolli linsubaunir
1 líter grænmetissoð.
1 tsk túrmerik
2 tsk garam masala
Karry paste grænt eftir smekk
Salt og pipar eftir smekk.
Ég kryddaði þetta svolitið vel.
Gæti orðið gulari á litinn hjá ykkur. Útaf þið notið ekki eins mikið af linsubaunum.
1. Ég byrjaði á því að skera niður grænmetið og setja í pottinn ásamt örlitu vatni og leyfa grænmetinu að mýkjast aðeins í nokkrar mínútur. Ef þið viljið steikja það uppúr olíu er það ekkert mál, ég reyni bara að nota olíu sem minnst.
2. Á meðan grænmetið var að hitna aðeins skolaði ég linsubaunirnar og leyfði þeim að liggja í bleyti í smá stund.
3. Eftir nokkrar mínútur bætti ég linsubaununum, grænmetissoðinu (ég sýð yfirleitt vatn í hraðsuðukatli og blanda grænmetiskrafti frá Sollu útí), engiferinu, hvítlauknum og kryddunum útí og leyfði þessu að malla í sirka tuttugu mínútur.
Ef ykkur finnst ekki nóg krydd þá er ekkert mál að bæta því útí. Betra að byrja á því að setja of lítið en of mikið.
Chinni Churry sósa
Mayones 100gr
Grískt jógúrt 100gr
Hvítlaukur 2 geirar
Chinni shurry kryddblanda 1 msk.
Öllu blandað saman með töfrasprota eða í blandara.
Kúrbítsklattar
Kúrbítsklattar með sólþurrkuðum tómötum
2 kúrbítar, rifnir
1 msk. sjávarsalt
1 egg
50 g spínat
1 dl sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
3 skallotlaukar, sneiddir
2 hvítlauksrif, pressuð
1 dl ristaðar furuhnetur
1 dl heilhveiti
sjávarsalt og nýmalaður pipar
olía til steikingar, t.d. sólblómaolía
Setjið rifna kúrbítinn í sigti með skál undir og stráið salti yfir. Látið standa í 15 mín. Við þetta losnar umframvatn úr kúrbítnum. Kreistið vatnið sem eftir er úr með höndunum. Blandið öllu hráefninu saman og setjið kúrbítinn saman við í restina. Bragðbætið með salti og pipar. Hitið olíu á pönnu og formið klatta, annaðhvort með höndum eða skeið og steikið á hvorri hlið í u.þ.b. 3 mín.
Blómkálsgratín Hrafnhildar

1 skammtur
1 stórt höfuð blómkál, skorið í litla bita
500 ml rjómi frá Gott í matinn
125 g rjómaostur með kryddblöndu
4 dl rifinn Óðals Tindur eða annar bragðmikill Óðalsostur
2 dl rifinn parmesan ostur
1 hvítlauksrif, smátt saxað
1⁄2 tsk. múskat
3 vorlaukar, smátt saxaðir (3-4)
2 tsk. grænmetiskraftur eða 1 grænmetisteningur
Salt og pipar
Vorlaukur til að skreyta með, má sleppa
Skref 1
- Hitið ofn í 180 gráður með blæstri.
Skref 2
- Smyrjið eldfast mót að innan með smjöri og setjið blómkálsbitana ofan í.
- Hellið rjómanum í pott ásamt hvítlauk, rjómaosti og rifnum osti en geymið dálítið af rifna ostinum til að strá yfir fyrir bakstur.
- Hitið við meðalhita og hrærið í af og til þar til osturinn er bráðnaður.
- Kryddið með múskati, grænmetiskrafti og salti og pipar.
- Hellið ostasósunni yfir blómkálið og stráið dálitlum rifnum osti yfir.
Skref 3
- Bakið í 30-40 mínútur eða þar til blómkálið hefur mýkst og osturinn er gullinbrúnn.
- Gott er að strá smátt söxuðum vorlauk yfir áður en gratínið er borið fram.
Grænmetislasagna vefstjórans

Innihald
200 g laukur
200 g succini
300 g gulrætur
100 g sveppir
2-3 hvítlauksrif
1 dós niðursoðnir tómatar
2 msk tómatpurre
2 tsk oregon
2 tsk basil
salt og pipar
1 dós kotasæla (stór)
Hálf stór dós Mascarpone ostur (eða eftir smekk)
200 g rifinn ostur (emmentaler góður)
lasagna plötur
Skref 1
Laukur, succini, gulrætur, sveppir og hvítlauksrif eru skorin niður smátt og steikt í 1 tsk ólívuolíu.
Skref 2
Niðursoðnir tómatar, tómatpurre, oregon, basil og salti og pipar er bætt á pönnuna og þetta látið krauma við vægan hita í 45 mín. (hræra) má setja vatn út í ef það þykknar.
Skref 3
Kotasælunni og Mascarpone ostinum er blandað saman og örlítið af vatni blandað saman við þar sem mascarpone osturinn er nokkuð fastur í sér og því erfitt að dreifa honum yfir fatið. Ekki blanda of miklu vatni saman við en þó það mikið að blandan sé orðin meðfærileg til þess að dreifa yfir fatið.
Skref 4
Svo er þessu raðað í eldfast mót í þessari röð:
lasagnaplötur – tómatgums – kotasælu/mascarponeblanda – ostur – lasagnaplötur – gums – …. o.s.frv. ATH: Setjið auka lasagneplötur efst og svo ost ofaná þær til þess að fullkomna réttinn. Þá verður efsta lagið stökkt og gott….
Skref 5
Bakað í 30-40 mín við 180 gráður.
Gott að hita hvítlauskbrauð með.
Kjúklingaréttur (mínus sveppir)
Kjúklingaréttur(mínus SVEPPIR).
Kjúklingastrimlar/lundir/bringur/(en mér finnst best að kaupa bara tilbúin kjúkling i krónuni eða hagkaup(eða þar sem hann er til).rifa hann bara niður.
- Rjómaostur/hreinn
- sítrónupipar
- paprikukrydd
- grænmetiskraftur
- rjómi.
- ritzkex eða doritos.(ræður því).
Skref 1
hitað ofninn á 180.
Skref 2
ritzkez/snakk i botninn a eldfast mót.þæginlegt að blanda kjúklingunum við sósuna og hella þvi svo yfir kexið/snakkið.
Skref 3
rifinn ost yfir.
Skref 4
eldað þar til osturinn er orðinn pinu brúnn.
Jarðaberjaostakaka sem ekki þarf að baka

Innihald
160 g hafrakex
60 g smjör, bráðið
200 g jarðarber
160 g sykur
1 stk límóna, safi og börkur
250 g marscarpone ostur við stofuhita
300 g rjómaostur við stofuhita
400 ml rjómi
Skraut
250 g jarðarber
Aðferð
- Hakkið hafrakexið í matvinnsluvél, bræðið smjörið og hellið saman við hafrakexið.
- Þrýstið hafrakexblöndunni ofan í hringlaga meðalstór form og aðeins upp á hliðarnar. Setjið formið í frysti á meðan þið undirbúið ostakökuna.
- Maukið jarðaber, límónusafa og límónubörk saman í matvinnsluvél.
- Hrærið ostana saman þar til þeir eru orðnir mjúkir og sléttir, bætið rjómanum saman við og hrærið saman.
- Bætið jarðarberjamaukinu saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Hellið ostablöndunni í yfir hafrakexbotninn og dreifið vel úr. Setjið plastfilmu yfir og frystið í klukkustund.
- Takið kökuna úr frystinum 20 mínútum áður en hún er borin fram. Skreytið með jarðarberjum.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir
Jógúrt muffins
Innihald
4 dl. sykur
220 g smjörlíki
3 meðalstór egg/4 lítil
Hrært saman í hrærivél, þar til létt og ljóst.
Blanda saman í annarri skál á meðan:
5 dl. hveiti
1/2 tsk. matarsódi
1/2 tsk. salt
vanilludropar
100 g rifið dökkt, súkkulaði að eigin vali
Aðferð
Sett út í hrærivélaskálina og hrært örstutt.
1 ds. kaffijógúrt/hnetu-og karamellujógúrt.
Blandað saman við og hrært í smá smástund.
Sett í múffuform með matskeið. Miða við að deigið fylli formið rétt, ríflega að hálfu.
Stilla ofninn á 180/200, ekki blástur. Fer eftir stærð formanna og ofnum, hversu lengi þær eru bakaðar en miða við að hætti að heyrast í þeim, þá eru þær bakaðar.