Ritstjórn er stýrihópur innan Samgöngustofu sem mótar framtíðarsýn fyrir helstu upplýsingaveitur stofnunarinnar, setur stefnu og tekur ákvarðanir varðandi efni, uppfærslu og eftirfylgni.
Markmið ritstjórnarinnar að efla upplýsingamiðlun stofnunarinnar með því að nýta vefi og aðrar miðlunarleiðir til að tryggja öflugt og markvisst upplýsingaflæði til starfsfólks, hagaðila og almennings. Markmið hennar er einnig að tryggja reglubundna endurnýjun og endurskoðun á upplýsingum á vefjum Samgöngustofu með þátttöku starfsfólks og sviða stofnunarinnar í samræmi við framtíðarstefnu, stefnuáherslur og samskiptastefnu, ásamt því að fylgjast með nýjum tækifærum til upplýsingamiðlunar.
Í ritstjórn sitja:
Þórhildur Elín Elínardóttir, formaður
Bjarki Sigþórsson, siglingasvið
Bjarklind Björk Gunnarsdóttir, stjórnsýslusvið
Björn Vilberg Jónsson, flugsvið
Guðmundur Guðmundsson, siglingasvið
Gunnar Geir Gunnarsson, stjórnsýslusvið
Gyða Marín Bjarnadóttir, skrifstofa forstjóra
Haraldur Kristinn Thorlacius, skrifstofa forstjóra
Rannveig Garðarsdóttir, umferðarsvið
Sigurjón Hreinsson, flugsvið
Una Björg Einarsdóttir, skrifstofa forstjóra/umferðarsvið
Nánari upplýsingar um ábyrgð og helstu verkefni ritstjórnar má lesa hér.