Öryggisverðir (fulltrúar stofnunarinnar skipaðir af forstjóra):
Friðjón Axfjörð Arnason (formaður) og Snorri Snorrason
Öryggistrúnaðarmenn (fulltrúar starfsmanna kosnir af starfsmönnum):
Hafa samband:
Hægt er a hafa samband við öryggisnefndina í netfangaskrá SGS undir heitinu Öryggisnefnd-SGS; og oryggisnefndsgs@samgongustofa.is
Einnig er hægt að hafa samband við einstaka fulltrúa i nefndinni beint á netfang þeirra, í síma eða augliti til auglitis.
Tilkynning um næstum slys og öryggismál er hægt að senda í ábendingakerfinu hér á innri vefnum undir eyðublaðinu Vinnuöryggi.
Hafa samband:
Öryggisnefnd Samgöngustofu er skipuð skv. 6. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og starfar samkvæmt þeim lögum og reglugerð r. 920/2006 um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs à vinnustöðum. Öryggisnefndin er skipuð 4 fulltrúum, 2 fulltrúum starfsmanna og 2 fulltrúum stofnunarinnar.
Hlutverk öryggisnefndar skv. reglugerð r. 920/2006 um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum:
- Öryggisnefnd skal taka til umfjöllunar mál er varða aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, sbr. einnig V. kafla reglugerðar þessarar. Nefndin skal sérstaklega taka til umfjöllunar slys, óhöpp og atvinnusjúkdómstilfelli með það fyrir augum a finna orsakir og koma með tillögur um úrbætur svo koma megi í veg fyrir endurtekningu.
- Öryggisnefnd tekur þátt í gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði á vinnustað, sbr. 65.-66. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum með síðari breytingum. og VIll. kafla reglugerðar þessarar, og fylgjast með því.