Bifreiðar Samgöngustofu eru bókaðar í gegnum eigið Outlook, Calendar.
Gerð er fundarbókun og er bifreiðinni bætt við sem “attendee”. Slegið er inn Bíll og koma þá upp allar bifreiðar sem Samgöngustofa hefur til umráða, en þær eru sex og þar af þrjár rafmagns.
Upplýsingar sem skal skrá við bókun bifreiða í Outlook:
- Tímasetningar, þ.e.a.s. hvenær bifreið er tekin og hvenær henni er skilað.
- Mikilvægt er að halda tímaramma og því getur verið betra að bóka of langan tíma en of stuttan.
- Ef ekki er hægt að skila bílnum á réttum tíma þarf að láta vita, annaðhvort með því að hafa samband við skiptiborð Samgöngustofu 480- 6000 sem tilkynnir þeim sem hefur bifreiðina bókaða næst, eða hafa beint samband við þann sem á næstu bókun.
- Ef bókuð bifreið er ekki til taks skal fyrst athuga hvort önnur bifreið sé á lausu og bóka hana (muna að afbóka hina).
- Mikilvægt er að afbóka bifreið sem ekki á að nota.
- Starfsfólk fær staðfestingu á tölvupósti um að bíllinn hafi verið bókaður.
Nánar má lesa um bifreiðar Samgöngustofu í CCQ undir VER-0151.

Bifreiðar Samgöngustofu:
- AO-P76 Nissan Leaf – Rafmagnsbifreið
- FY-N90 Toyota Auris
- JY-P07 Toyota bZ4X – Rafmagnsbifreið, langdrægni (tæpir 300 km. drægni við kjör aðstæður)
- LG-U37 Toyota bZ4X – Rafmagnsbifreið, langdrængi (tæpir 300 km. drægni við kjör aðstæður)
- IF-R54 Subaru Forester (settur á nagladekk yfir vetrartímann)
- KR-Y74 Subaru Forester (settur á nagladekk yfir vetrartímann)