Leiðbeiningar fyrir fundarherbergi í matsal

Skref 1
Stofna nýjan Teams-fund í Calendar í Outlook. Lykilatriði er að bjóða fundaherberginu Matsalur með í fundarboðinu. Senda boð og passa að það komi til baka samþykki frá fundaherberginu.

Skref 2
Alltaf er ráðlegast að starta fundinum á stjórnspjaldi í Matsal sem er við stóra
skjáinn, ef fundur er alveg að hefjast birtist „Join“ takki á skjá, þá er bara smellt
á hann til að starta fundinum í matsal. Ef sá takki er ekki til staðar þá er hægt að
smella á „Calendar“ og sjá næstu fundi þar og smella á „Join“ á viðkomandi
fund. Sjá sýnidæmi hér fyrir neðan:


Skref 3 (ef sýna á myndefni á fundinum, vídeó eða PowerPoint glærur)
Ef sýna á glærur á fundinum er einfaldast og hentugast að sá sem er að sýna
þær tengi fartölvuna sína við HDMI tengið sem er í horninu við stjórnspjaldið,
sjá myndir hér að neðan. Ef ræðupúltið er útá miðju gólfi þarf að nota HDMI
framlenginguna svörtu annars er hægt að tengja beint í HDMI tengið á hvítu
„Cisco stjörnunni“, nú eða USB-C tengið á henni. En einfaldast að notast við
HDMI tengið.

Skref 4 (ef sýna á myndefni á skjávarpa í hinum hluta matsalarins)
Ef einnig á að varpa fundinum á skjávarpann í hinum enda matsalarins þá þarf
að fara að CRESTRON stjórnborðinu á veggnum, það vaknar upp þegar einhver
nálgast. Þar þarf að velja valmöguleikann „Tengi í sal 2“ á field-inu lengst til
vinstri. Sjá skýringarmynd hér að neðan.