Samgöngusamningur

Starfsfólk sem hefur tök á að ferðast með vistvænum samgöngumáta til og frá vinnu getur skrifað undir samgöngusamning, skilað honum rafrænt til mannauðdeildar á Stofunni og fengið greiddan samgöngustyrk.

Uppfylla þarf eftirfarandi:

  • Fullur styrkur: Ferðast til og frá vinnu með vistvænum ferðamáta að jafnaði 80% tilvika (fjóra daga vikunnar).
  • Hálfur styrkur: Ferðast til og frá vinnu með vistvænum ferðamáta að jafnaði 40% tilvika (tvo daga vikunnar).

Að ferðast á rafmagnsbíl telst ekki til vistvænna ferðamáta skv. skattmati.

Athugið að endurnýja þarf alla samninga árlega.

Hér er hlekkur á samgöngustefnuna inná CCQ