
Á slóðinni skyrslur.samgongustofa.is er að finna tölfræðivef Samgöngustofu en hann er eingöngu aðgengilegur fyrir starfsfólk Samgöngustofu.
Á vefnum er hægt að sjá ýmsa tölfræði síðustu ára úr ökutækjaskrá, eins og til dæmis nýskráningar, afskráningar, skoðanir og eigendaskipti. Einnig er að finna tölfræði tengda skipstjórnar- og vélstjórnarskírteinum og NorType tölfræði varðandi uppfærslur á gerðum og gerðarviðurkenningum.
Vefurinn er í stöðugri vinnslu og mun fleira bætast við í náinni framtíð.
Upplýsingar um vefinn gefur Markús Benediktsson, það má líka hafa samband varðandi hugmyndir að tölfræði sem ætti heima inni á vefnum.