Heilsustyrkur

Stefna Samgöngustofu er að styðja og styrkja starfsfólk sem vill efla heilsu sína og vellíðan með ástundun líkamsþjálfunar. Starfsfólk getur árlega fengið styrk til iðkunar líkamsþjálfunar.

Hámarksfjárhæð er ákvörðuð árlega og eru styrkir greiddir út gegn afhendingu kvittunar. Sótt er um heilsustyrk rafrænt hér í Stofunni . Á kvittun skal koma fram nafn og kennitala starfsmanns og gildistími kortsins/námskeiðsins. Styrkurinn er greiddur innan almanaksársins, kvittun og gildistími korts/námskeiðs skal eiga við það ár sem sótt er um styrk fyrir. Ekki er hægt að greiða styrki aftur í tímann.

Mannauðsdeild sér um afgreiðslu á styrknum.