Stefnuvefur og hönnunarvefur

Stefnuvefur

Á stefnuvef Samgöngustofu má sjá framtíðarstefnu Samgöngustofu 2025-2029.

Stefnuáherslur okkar snúa að:

  • Öryggi í samgöngum
  • Aðgengilegri þjónustu
  • Samfélagslegri ábyrgð
  • Öflugu innra starfi

Stefnan er vegvísir til þeirrar framtíðar sem við viljum byggja á komandi árum. Við viljum gera gott samfélag enn betra. Þetta er okkar leið að árangri í samstarfi við hagaðila. Í því felst einnig að markmið séu skilgreind, mælikvarðar settir og verkefni unnin til að tryggja að árangri sé náð.

Hönnunarvefur

Á hönnunarvef Samgöngustofu má finna hönnunarstaðalinn okkar, sækja merkið, litina, letrið og ljósmyndirnar. Einnig allskonar gagnlegt efni á borð við undirskriftir í tölvupóst, bakgrunn fyrir teamsfundi og grunn að power-point kynningum.