Við höfum tekið eftir því að margir hér innanhúss eru ennþá að nota Internet Explorer en það er töluvert síðan að Microsoft hætti að styðja þann vafra og hann hreinlega virkar ekki lengur. Um þetta má t.d. lesa hér. Í staðinn er Microsoft að nota Edge sem er þeirra vafri í dag. Þetta þýðir m.a. það að þau ykkar sem opnuðuð innri vefinn í IE í dag fenguð enga vinstri valmynd á vefnum og ýmislegt virkar mjög undarlega. Forsíðan hjá ykkur var þannig eitthvað á þessa leið:

Svona lítur vefurinn út í vöfrum sem er við haldið eins og Edge, Firefox og Chrome:

Gott er að breyta um “default browser” í tölvunni til að koma í veg fyrir að IE sé alltaf valinn sjálfkrafa. Hér má finna leiðbeiningar um hvernig það er gert.