Umhverfishópurinn þakkar þeim sem tóku þátt í keppni hópsins sem fór fram fyrr í mars. Okkur bárust margar frábærar og metnaðarfullar tillögur, við kunnum að meta áhuga ykkar og framtak. Hugmyndirnar eru innblástur fyrir stofnunina og hjálpa til við að huga að jákvæðum breytingum sem gagnst bæði starfsfólki og umhverfinu.
Við óskum sigurvegaranum Ólöfu Önnu Rúdólfsdóttur innilega til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt!
Vinningstillaga: Það mætti fara yfir það hvernig hreinsiefni eru notuð í húsinu, þ.e.a.s. efnin sem eru notuð við að þrífa húsið og hvort þau séu svansvottuð. Það skiptir máli fyrir heilsu þess sem þrífur húsið alla daga að efnin sem notuð eru séu ekki heilsuspillandi sem þau eru mjög oft, það er líka mikilvægt fyrir umhverfið að efnin sem fara út í sjóinn frá frárennsli hússins séu ekki skaðleg náttúrunni. Öruggast er að þau séu Svansvottuð eða með Evrópublóminu.
Rökstuðningur fyrir vali á vinningstillögu:
Tillagan um að fara yfir hreinsiefni og tryggja að þau séu Svansvottuð eða með Evrópublóminu var valin þar sem hún hefur bæði heilsufarslegan og umhverfislegan ávinning.
Heilsa starfsfólks: Umhverfisvottuð hreinsiefni innihalda skaðleg efni, sem dregur úr hættu á öndunarfæra- og húðertingu hjá þeim sem nota efnin.
Umjhverfisvernd: Mengun frá hreinsuefnum getur haft skaðleg áhrif á vistkerfi í vatni. Með vistvænum efnum er dregið úr þessum áhrifum.
Innleiðing tillögu framkvæmanleg: Markaðurinn býður upp á fjölbreytt úrval umhverfisvænna hreinsiefna, oft án aukins kostnaðar.
Þá styður tillagan alemnnt við umhverfisstefnu SGS og bætir vinnuumhverfu og umhverfisáhrif stofnunarinnar.
Með kveðju, Umhverfishópurinn
